ÞJÓNUSTA

Kjarnaborun og steypusögun fyrir lagnir

Þegar leggja þarf nýjar lagnir, stækka op eða gera breytingar á eldri mannvirkjum eru kjarnaborun og steypusögun oft einu og bestu lausnirnar. Við hjá Sigurjóni pípara bjóðum upp á fagmannlega kjarnaborun og steypusögun sem tryggir hrein og nákvæm göt fyrir rör og lagnir. Við mætum á staðinn með öflugan tækjabúnað til að bora og saga í gegnum steypu á snyrtilegan og skilvirkan hátt.

kjarnaborun

Nákvæmni við lagnaleiðir og frárennsli

Hvort sem verið er að leggja nýjar frárennslislagnir í gegnum þykka sökkulveggi eða koma fyrir nýjum vatnslögnum innanhúss, þá skiptir máli að borunin sé framkvæmd af nákvæmni. Við notum kjarnaborun til að opna leiðir fyrir skólp og neysluvatn án þess að valda óþarfa hnjaski á burðarvirkjum fasteignarinnar. Hvort sem verið er að leggja nýjar frárennslislagnir í gegnum þykka sökkulveggi eða koma fyrir nýjum vatnslögnum innanhúss, þá skiptir máli að borunin sé framkvæmd af nákvæmni.

Samspil við dren

Þegar ráðist er í endurnýjun drenlagna eða frágang á sólplögnum þarf oft að bora eða saga í gegnum útveggi og stéttar til að tengja kerfin saman við inntak. Ef farið er í stærri verkefni eins og endurnýjun á dren eða endurnýjun á skólpi erum við með allan tækjabúnað til að klára bæði uppgröft, pípulagnir, steypusögun og kjarnaborun á einum og sama staðnum. Þannig losnar þú við að kalla til marga mismunandi verktaka.

Örugg og snögg neyðarviðbrögð

Víðamiklar framkvæmdir og lagnabreytingar geta stundum leitt í ljós eldri og laskaðar lagnir. Ef upp kemur óvæntur leki á meðan á framkvæmd stendur, eða ef rör springur fyrirvaralaust, geturðu reitt þig á neyðarþjónustuna okkar. Öflug neyðaþjónusta tryggir að brugðist er við strax til að lágmarka vatnstjón.