Traustur pípari á höfuðborgarsvæðinu
Sigurjón pípari býður faglega pípulagningaþjónustu fyrir einstaklinga, húsfélög og fyrirtæki um allt höfuðborgarsvæðið. Við tökum að okkur fjölbreytt pípulagningaverkefni, allt frá almennu viðhaldi og viðgerðum til breytinga, endurnýjunar lagna og stærri framkvæmda. Áhersla er lögð á vönduð vinnubrögð, snyrtilegan frágang og hagkvæmar lausnir.

Skólp- og drenplagnir
Mikilvægt er að huga vel að undirstöðum fasteignarinnar og því bjóðum við upp á hágæða vinnu sem viðkemur frárennslislögnum. Við sérhæfum okkur í endurnýjun á skólpi. Eldri skólplagnir og rör geta valdið miklum usla ef þau gefa sig og því borgar sig að láta mynda og yfirfara þau tímanlega.
Einnig tökum við að okkur endurnýjun drenlagna og uppsetningu á nýjum drenlögnum. Rétt frágengið dren í kringum hús og mannvirki kemur í veg fyrir raka- og mygluskemmdir af völdum grunnvatns. Vantar þig aðstoð við endurnýjun á dren eða skólpi? Sem traustur pípari á höfuðborgarsvæðinu aðstoðum við þig við að finna bestu og hagkvæmustu lausnina fyrir þína fasteign.
Snjóbræðsla og hitalagnir
Við sjáum um lagningu á snjóbræðslukerfum, svo sem sólplögnum í innkeyrslur og stéttar. Gott snjóbræðslukerfi er gulls ígildi yfir köldustu vetrarmánuðina á Íslandi, eykur öryggi gangandi vegfarenda og léttir snjómoksturinn verulega.
Öflug neyðarþjónusta
Vatnstjón gera sjaldnast boð á undan sér. Ef rör springur, ofn fer að leka, eða alvarleg stífla myndast í kerfinu, skipta skjót viðbrögð öllu máli til að lágmarka tjónið. Við bjóðum upp á hraða og öfluga neyðarþjónustu pípara þegar mikið liggur við. Okkar neyðaþjónusta er áreiðanleg og þú getur treyst því að við mætum fljótt á svæðið og grípum til nauðsynlegra aðgerða.
Er kominn tími á endurnýjun eða vantar þig aðstoð vegna leka? Smelltu hér til að hafa samband og fá ráðgjöf eða tilboð í þitt verkefni frá traustum og reyndum pípara.