ÞJÓNUSTA

Hafðu samband

Ertu að skipuleggja framkvæmdir, kominn tími á viðhald eða vantar þig ráðgjöf frá fagmanni? Sigurjón pípari sinnir fjölbreyttum verkefnum fyrir einstaklinga, húsfélög og fyrirtæki.

Þú getur sent okkur almenna fyrirspurn eða verkbeiðni með því að fylla út formið á síðunni.

Neyðarþjónusta allan sólarhringinn

Við bjóðum upp á neyðarþjónustu allan sólarhringinn vegna alvarlegra leka og annarra bráðatilvika í lögnum. Ef hætta er á vatnstjóni eða þörf er á skjótri aðstoð skaltu hringja í síma 896 1639.

Ráðgjöf og tilboð í verk

Við tökum að okkur fjölbreytt verkefni af öllum stærðum, svo sem almennt viðhald, viðgerðir, endurnýjun baðherbergja, útskipti á gömlum lögnum og kjarnaborun. Við höfum einnig sérhæft okkur í endurnýjun skólp- og drenlagna og erum með allan nauðsynlegan tækjabúnað til að sjá um slík verkefni frá upphafi til enda.

Sigurjón Jónsson er löggiltur pípulagningameistari og veitir faglega ráðgjöf um lausnir sem henta hverju verkefni. Við gerum föst verðtilboð í stærri verk sé þess óskað.

Sendu okkur fyrirspurn með upplýsingum um verkefnið og við höfum samband eins fljótt og kostur er.

Fylltu út formið hér að neðan, við svörum öllum fyrirspurnum eins fljótt og auðið er!

Senda fyrirspurn